Svínakjöt
Heim Dagskráin Verðlisti Áleggslisti Matseðill Nettilboð Gourmetpizza Svínakjöt Agel

 

 

Korngrís frá Laxárdal  

Grís og flesk ehf. er svínabú í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Bændurnir þar rækta sitt eigið bygg til að fóðra svínin og kaupa einnig bygg af öðrum bændum á Suðurlandi. Haustið 2010 var þreskt hveiti í fyrsta skiptið hjá Grís og flesk og var uppskeran góð. Svínin á búinu eru því að mestu leyti alin á íslensku fóðri. 

Við seljum hvern bita í lausu. Ef keypt er a.m.k 10 kíló í einni pöntun þá er veittur 10% afsláttur. Starfsfólk Pizzavagnsins mun afhenda kjötið á þeim stöðum þar sem vagninn er staðsettur í hvert skipti. Grísunum er slátrað í sláturhúsi SS og kjötið unnið og pakkað í lofttæmdar umbúðir í kjötvinnslu Krás á Selfossi. Allar vörur eru afhentar frosnar.

Tekið er við pöntunum í síma 899-2910, einnig er hægt að senda e-mail á bjorgvin@uppsveitir.is  Kjötið er afhent í Pizzavagninum þar sem hann er staðsettur hverju sinni. Í pöntuninni þarf að koma fram hvaða bita er óskað eftir og hvar kjötið á að afhendast. 

Vikulega er ferð til Reykjavíkur með kjöt fyrir þá sem hafa ekki tækifæri á að sækja í Pizzavagninn, ekki er tekið gjald fyrir keyrsluna í bæinn. Einnig er hægt að senda pakkana með flutningabílum út á land og bætist þá flutningskostnaður við pöntunina. Allir pakkar sem eru sendir með flutningabíl eru greiddir fyrirfram.

 

Korngrísapakki 1

c.a.kg

c.a verð á pk verðútreikningur á
læri Bayonneskinka eða sykursöltuð rúlla 1,7        2.712      bayonneskinku
læri 2pk af hverri tegund: snitsel, gúllas, hakk 3,6        3.212      
hryggur 1 hamborgarhryggur eða nýr hryggur 3        3.960     hamborgarhrygg
bógur Bógsteik reykt eða ný m/puru 2,2        2.178     nýrri bógsteik
hnakki 6-8 hnakkasn. léttreyktar eða nýjar 1,2        1.320     nýjum sneiðum
síða 0,5 kg bacon og síðusteik með puru 2,5        3.658      
14,2      17.039     heildarverð

Þetta gerir um 1.080 krónur pr.kg

     15.335     með 10% afslætti

 

  

Laxárdalur 2009